Starfsfólki viđ kennslu fjölgar ţrátt fyrir fćkkun nemenda
Haustiđ 2008 voru 7.858 starfsmenn í grunnskólum á Íslandi og hafđi ţeim fjölgađ um 232 frá hausti 2007 eđa um 3,0%. Starfsmenn viđ kennslu og skólastjórnun voru 5.084 í 4.999 stöđugildum og hefur fjölgađ um 85 frá fyrra ári, sem er 1,7% fjölgun. Stöđugildum starfsmanna viđ kennslu hefur fjölgađ um 13 eđa um 0,3%, sem ţýđir ađ hver kennari vinnur skemur ađ međaltali en áriđ áđur. Starfsmönnum viđ kennslu fjölgar ţó ađ grunnskólanemendum hafi fćkkađ um 330 frá síđasta skólaári. Ţessar tölur eru úr gagnasöfnun Hagstofu Íslands sem safnar upplýsingum um starfsfólk í grunnskólum á Íslandi í október ár hvert.
Konum fjölgar međal skólastjóra
Haustiđ 2007 voru konur í fyrsta skipti í meirihluta međal skólastjóra. Haustiđ 2008 hefur konum međal skólastjóra fjölgađ enn frekar, og eru nú 54,8% skólastjóra. Eina starfsstéttin innan grunnskólans ţar sem karlar eru í meirihluta eru húsverđir.
Karlmönnum viđ kennslu fjölgar um 6 manns en fćkkar hlutfallslega um 0,2%. Eru karlar nú 20,8% kennara. Ţó ađ karlmönnum fjölgi fćkkar stöđugildum ţeirra um 5.
Rúmur helmingur starfsfólks viđ kennslu er 30-49 ára
Haustiđ 2008 eru 55,8% kennara og skólastjórnenda á aldrinum 30-49 ára. Sé aldurshópnum skipt í 5 ára aldursbil eru flestir í aldurshópnum 35-39 ára eđa 768 manns. Ţegar aldur kennara er borinn saman viđ áriđ á undan hefur starfsmönnum yngri en 40 ára fjölgađ um 12 og kennurum á aldrinum 40-54 ára hefur fćkkađ um 7 manns. Kennurum eldri en 55 ára hefur aftur á móti fjölgađ um 80 manns frá fyrra ári. Međalaldur starfsmanna viđ kennslu er nú 43,9 ár og hefur hćkkađ um 1,5 ár á síđastliđnum 6 árum.
Tćplega 85% starfsfólks viđ kennslu hefur kennsluréttindi
Alls hafa 84,8% starfsmanna viđ kennslu kennsluréttindi og er ţađ óbreytt hlutfall frá fyrra ári. Haustiđ 2005 var ţetta hlutfall hćst, 86,7%, og hefur ţví hlutfall réttindakennara lćkkađ um tćplega tvö prósentustig á ţessum ţremur árum. Hćst er hlutfall réttindakennara á landinu í Reykjavík ţar sem 91,5% kennara hafa kennsluréttindi. Lćgst er hlutfall réttindakennara á Austurlandi og Vestfjörđum ţar sem 66,7% og 68,5% kennara hafa kennsluréttindi. Hlutfall réttindakennara á Vestfjörđum hefur hćkkađ um 4,6% frá hausti 2007.
Vert er ađ geta ţess ađ 93,9% starfsmanna međ kennsluréttindi hafa lokiđ háskólaprófi. Eldri kennurum međ kennsluréttindi, sem luku prófi áđur en kennaramenntun var flutt á háskólastig, fćkkar ár frá ári.
Fleiri starfsmenn viđ kennslu eru í fullu starfi
Haustiđ 2008 eru 78,0% starfsfólks viđ kennslu og skólastjórnun í fullu starfi eđa meira. Ţetta hlutfall hefur veriđ ađ hćkka undanfarin ár. Fyrir 3 árum var samsvarandi hlutfall 75,9%. Starfsmenn međ kennsluréttindi eru hlutfallslega fleiri í fullu starfi en leiđbeinendur eru frekar ráđnir í hlutastarf.
Brottfall úr kennslu á milli ára er rúmlega 17%
Alls höfđu 863 starfsmenn viđ kennslu í október 2007 hćtt eđa fengiđ leyfi frá störfum í október 2008 og er brottfalliđ 17,3%. Ţetta er svipađ brottfall og síđastliđiđ ár ţegar ţađ mćldist 17,4%. Ţađ var hćsta brottfall sem mćlst hafđi í gagnasöfnun Hagstofu Íslands. Brottfall úr kennslu er hlutfallslega meira međal ţeirra sem ekki hafa kennsluréttindi og međal ţeirra sem eru í hlutastarfi.