Ţriđjudagur 7. september 2010
 
Félag grunnskólakennaraKFRKMSKKRKSKVKSABKNEKSNVKSVKFV
Efni
 
Póstlisti
 
Fréttir
30. maí 2008
Nemendur á öllum skólastigum rúmlega 104 ţúsund

Skólasókn í framhaldsskólum og háskólum haustiđ 2007
Hagstofa Íslands hefur tekiđ saman tölur um fjölda nemenda á öllum skólastigum og tölur um skólasókn í framhaldsskólum og háskólum eins og hún var á miđju haustmisseri 2007. Auk ţess hafa gögn um nemendur í framhalds- og háskólum veriđ endurflokkuđ í samrćmi viđ hiđ alţjóđlega flokkunarkerfi menntunar ISCED97 og nokkrum veftöflum veriđ breytt til samrćmis. Ţessar breytingar ná aftur til ársins 2002. Gögn sem ekki verđa lengur uppfćrđ má áfram finna undir „eldra efni“ á vef Hagstofu Íslands.

Nemendur á öllum skólastigum rúmlega 104 ţúsund
Á skólaárinu 2007-2008 er heildarfjöldi nemenda á landinu öllu 104.064. Á yfirstandandi skólaári eru skráđir 17.446 nemendur á leikskólastigi, 43.802 nemendur á grunnskólastigi, 25.090 nemendur á framhaldsskólastigi og 17.726 á skólastigum ofar framhaldsskólastigi. Nemendum á Íslandi hefur fjölgađ um 1.776 frá árinu áđur, eđa um 1,7%.

Frá 1997 hefur nemendum á öllum skólastigum fjölgađ um 17.904 eđa 20,8%. Á ţessu árabili hefur gríđarlegur vöxtur veriđ á skólastigum ofan framhaldsskólastigs. Fjöldi nemenda á ţessum skólastigum, sem eru viđbótarstig, háskólastig og doktorsstig, hefur ríflega tvöfaldast en ţađ er fjölgun sem nemur 111,7%. Á sama tíma hefur nemendum á framhaldsskólastigi fjölgađ um 21,7% og á leikskólastigi um 17,4%. Á grunnskólastigi fjölgađi nemendum um 3,5% á ţessu tímabili.

Hlutur kvenna í fjölgun nemenda undanfarin 10 ár er áberandi, einkum ofan framhaldsskólastigsins. Ţar fjölgađi konum um 6.109 (124,4% ) en körlum um 3.245 (93,7%). Konur eru 52,3% nemenda á framhaldsskólastigi og 62,2% nemenda ofan framhaldsskólastigsins.

Skólasókn 16 ára er 93% og er óbreytt tvö ár í röđ
Skólasókn 16 ára ungmenna á Íslandi haustiđ 2007 var 93% sé miđađ viđ öll kennsluform (dagskóla, kvöldskóla og fjarnám). Skólasókn 16 ára ungmenna á landsvísu hefur ekki breyst frá fyrra ári. Haustiđ 2005 voru flest 16 ára ungmenni í skóla en ţá náđi skólasókn ţeirra 94%.
Stúlkur sćkja skóla í meira mćli en piltar. Skólasókn stúlkna er 94% á móti 92% pilta. Enn fremur er nokkur munur á skólasókn 16 ára ungmenna eftir landshlutum. Hlutfallslega flestir 16 ára unglingar sćkja skóla á Vesturlandi en ţar er skólasókn 96%. Á Vesturlandi og Vestfjörđum er enginn munur á skólasókn 16 ára pilta og stúlkna en hins vegar er talsverđur munur á skólasókn kynja á Suđurnesjum og á Austurlandi. Skólasókn 16 ára stúlkna mćlist hćst á Austurlandi en ţar er hún 97% en til samanburđar kjósa einungis 92% pilta á Austurlandi ađ sćkja skóla. Lćgst skólasókn á landinu er međal pilta á Suđurnesjum en ţar er hún 86% en skólasókn stúlkna 91%





Til baka
 
Á döfinni
Enginn atburđur á skrá
 
Könnun
Hefur álag í kennslunni aukist á ţessum vetri?

Nei
Veit ekki

 
OZON-Vefumsjónarkerfiđ
Félag Grunnskólakennara - Laufásvegi 81 - 101 Reykjavík - Sími: 595-1111