Vísitala neysluverđs miđuđ viđ verđlag í maí 2008 er 304,4 stig (maí 1988=100) og hćkkađi um 1,37% frá fyrra mánuđi. Vísitala neysluverđs án húsnćđis er 273,6 stig og hćkkađi um 1,48% frá apríl.
Gengissig krónunnar og erlendar verđhćkkanir halda áfram ađ skila sér út í verđlagiđ og hćkkađi verđ á innfluttum vörum um 1,7% (vísitöluáhrif 0,61%). Verđ á bensíni og olíum hćkkađi um 5,7% (0,26%).
Kostnađur vegna eigin húsnćđis lćkkađi um 0,2% (-0,04%). Ţar af voru áhrif af lćkkun markađsverđs -0,15% en áhrif af hćkkun raunvaxta voru 0,11%. Ţá hćkkađi kostnađur vegna viđhalds og viđgerđa húsnćđis um 5,7% (0,27%).
Verđ á mat og drykkjarvöru hćkkađi um 1,9% (0,23%).
Síđastliđna tólf mánuđi hefur vísitala neysluverđs hćkkađ um 12,3% en vísitala neysluverđs án húsnćđis um 11,4%. Undanfarna ţrjá mánuđi hefur vísitala neysluverđs hćkkađ um 6,4% sem jafngildir 28% verđbólgu á ári (32,7% fyrir vísitöluna án húsnćđis).
Vísitala neysluverđs samkvćmt útreikningi í maí 2008, sem er 304,4 stig, gildir til verđtryggingar í júlí 2008. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 6.010 stig fyrir júlí 2008.