Ţriđjudagur 7. september 2010
 
Félag grunnskólakennaraKFRKMSKKRKSKVKSABKNEKSNVKSVKFV
Efni
 
Póstlisti
 
Fréttir
2. maí 2008
Ţrjár doktorsvarnir viđ Kennaraháskóla Íslands

Dagana 7., 8. og 9. maí fara fram fyrstu og einu doktorsvarnir viđ Kennaraháskóla Íslands ţar sem skólinn sameinast Háskóla Íslands 1. júlí nćstkomandi.  Doktorsefnin eru Sigurđur Pálsson cand.theol, Guđrún Geirsdóttir lektor viđ Háskóla Íslands og Rúnar Sigţórsson dósent viđ Háskólann á Akureyri.

Ritgerđir doktorsefna munu liggja frammi á bókasafni skólans viku áđur en vörn fer fram.

Doktorsvarnir eru öllum opnar og fara fram í Skriđu, fyrirlestrarsal Kennaraháskóla Íslands (gengiđ inn frá Háteigsvegi). Ţeir sem vilja leggja spurningar fyrir doktorsefni  viđ vörnina ţurfa ađ gefa sig fram viđ Gretar L. Marinósson, ađstođarrektor rannsókna, eigi síđar en degi fyrir viđkomandi doktorsvörn (sími 845 6722, netfang:
gretarlm@khi.is). 

7. maí kl. 14:00
Doktorsvörn Sigurđar Pálssonar

Miđvikudaginn 7. maí ver Sigurđur Pálsson doktorsritgerđ sína í sögu trúarbragđamenntunar: Kirkja og skóli á 20. öld. Stađa og ţróun kennslu í kristnum frćđum og trúarbragđafrćđum á Íslandi međ samanburđi viđ Danmörku, Noreg og Svíţjóđ. Í ritgerđinni er rakin hlutdeild kirkjunnar ađ skólastarfi á öldinni sem leiđ og ţróun kristindóms- og trúarbragđafrćđslu í skyldunámsskólum. Ţeir ţćttir sem rannsóknin beindist einkum ađ eru hugmyndafrćđilegur grundvöllur skólastarfs, hlutur kirkjunnar í stjórn skólans, stađa og ţróun kristindóms- og trúarbragđafrćđslunnar og tengsl hennar viđ skírnarfrćđslu kirkjunnar. Fjallađ er um möguleika foreldra til ađ fá undanţágur fyrir börn sín frá ţátttöku í frćđslunni og greind helstu átakaefni sem upp komu á ólíkum tímum. Niđurstöđur eru bornar saman viđ ţróunina í Danmörku, Noregi og Svíţjóđ og sérstađa Íslands dregin fram.

Leiđbeinandi var dr. Loftur Guttormsson prófessor viđ Kennaraháskóla Íslands. Í doktorsnefnd sátu auk hans Helgi Skúli Kjartansson prófessor viđ Kennaraháskóla Íslands og dr. Hjalti Hugason prófessor viđ Háskóla Íslands. Andmćlendur viđ vörnina verđa dr. Ingólfur Á. Jóhannesson prófessor viđ Háskólann á Akureyrir og dr. Pétur Pétursson prófessor viđ Háskóla Íslands.

Sigurđur Pálsson er fćddur 19. september 1936 í Reykjavík. Hann lauk kennaraprófi og söngkennaraprófi frá Kennaraskóla Íslands 1957, B.A.-prófi í guđfrćđi og uppeldisfrćđi frá Háskóla Íslands 1978 og cand.theol.-prófi frá sama skóla 1986.

Sigurđur kenndi viđ barnaskóla í Reykjavík í rúman  áratug. Hann var skrifstofustjóri hjá Ríkisútgáfu námsbóka 1969–1977 og námstjóri í kristnum frćđum og trúarbragđafrćđum viđ menntamálaráđuneytiđ 1977–1984. Ţá tók hann viđ starfi sviđsstjóra námsefnissviđs Námsgagnastofnunar.  Hann var framkvćmdastjóri Hins íslenska biblíufélags 1990–1997 og sóknarprestur viđ Hallgrímskirkju 1997–2006. Jafnhliđa öđrum störfum hefur Sigurđur veriđ stundakennari viđ bćđi Kennaraháskóla Íslands og Háskóla Íslands.
Sigurđur hefur ritađ  bćkur og greinar um trúaruppeldi og kristindóms- og trúarbragđafrćđslu í skólakerfinu og er einnig höfundur námsefnis í kristnum frćđum fyrir grunnskóla.

8. maí kl. 14:00
Doktorsvörn Guđrúnar Geirsdóttur

Fimmtudaginn 8. maí ver Guđrún Geirsdóttir doktorsritgerđ sína í menntunarfrćđi: ‘We are caught up in our own world’: Conceptions of curriculum within three different disciplines at the University of Iceland. Rannsóknin fór fram viđ Háskóla Íslands 2002–2007 og var megintilgangur hennar ađ skođa hugmyndir háskólakennara um námskrárgerđ svo og frelsi og svigrúm kennara til ađ taka ákvarđanir um nám og kennslu. Niđurstöđur benda til ţess ađ innan háskólagreina sé ađ finna sérstaka stađbundna námskrá sem verđur til ţegar ‘alţjóđlegar’ háskólagreinar eru ađlagađar ákveđnum félagsmenningarlegum ađstćđum. Háskólakennarar gegna mikilvćgu hlutverki viđ ţá ađlögun og er námskráin ađ verulegu leyti mótuđ af hugmyndum ţeirra frá eigin háskólatíđ og kennslureynslu. Stofnanalegir samskiptahćttir svo og saga greinarinnar eru einnig áhrifavaldar. Innan námskrár takast á ólík sjónarmiđ um markmiđ greina, ćskilega eiginleika nemenda svo og samstarf kennara í námskrárgerđ. Ţá leiddi rannsóknin í ljós ađ ólík einkenni háskólagreina skapa kennurum ólíkt svigrúm og áhrifavald til námskrárgerđar.

Leiđbeinendur viđ rannsóknina voru dr. Ingvar Sigurgeirsson prófessor og dr. Allyson Macdonald prófessor, bćđi viđ Kennaraháskóla Íslands. Auk ţeirra átti sćti í doktorsnefnd dr. Ingrid Lunt  prófessor viđ menntavísindadeild Oxford háskóla. Andmćlendur viđ vörnina verđa dr. Börkur Hansen prófessor viđ Kennaraháskóla Íslands og dr. Kelly Coate lektor í námi og kennslu á ćđri menntastigum viđ National University of Ireland, Galway, Írlandi.

Guđrún Geirsdóttir er fćdd í Reykjavík 22. nóvember 1957. Hún lauk B.A.-prófi í uppeldisfrćđi viđ Háskóla Íslands áriđ 1984 og prófi í kennslufrćđi til kennsluréttinda sama ár. Guđrún lauk M.Sc.-prófi í námskrárfrćđi og kennslu (Curriculum and Instruction) viđ Pennsylvanina State Univeristy 1996.

Guđrún kenndi viđ Gagnfrćđaskóla Akraness frá 1977–1979 og viđ Grundaskóla á Akranesi frá 1985–1996. Hún var ráđin lektor í kennslufrćđi viđ Háskóla Íslands 1996 og kennir ţar kennslufrćđi og námskrárfrćđi. Ţá hefur Guđrún veriđ stjórnarformađur Kennslumiđstöđvar Háskóla Íslands frá stofnun hennar 2001 og stýrt ţar uppbyggingu kennsluţróunar fyrir háskólakennara.

9. maí kl. 14:00
Doktorsvörn Rúnars Sigţórssonar

Föstudaginn 9. maí ver Rúnar Sigţórsson doktorsritgerđ sína í menntunarfrćđi Mat í ţágu náms eđa nám í ţágu mats: Samrćmd próf, kennsluhugmyndir kennara, kennsla og nám í náttúrufrćđi og íslensku í fjórum íslenskum grunnskólum.

Ritgerđ Rúnars fjallar um tilviksrannsókn sem beindist ađ ţví ađ kanna hvađa mark samrćmd próf í náttúrufrćđi og íslensku setja á kennslu og nám á miđ- og unglingastigi í fjórum heildstćđum grunnskólum. Einkum var leitast viđ ađ greina samhengi Ađalnámskrár grunnskóla og samrćmdra prófa viđ kennsluhugmyndir kennara, tilhögun kennslu, viđfangsefni nemenda og uppskeru ţeirra af náminu. Niđurstöđur rannsóknarinnar benda til ađ samrćmd próf setji ađ mörgu leyti mark á ţetta samhengi. Um leiđ er undirstrikađ ađ prófin séu tćpast beinn áhrifavaldur heldur međal ţess sem mótar og viđheldur ákveđinni kennsluhefđ. Í skólunum fjórum einkennist hún af efnisvali og kennslutilhögun sem kennarar töldu ađ byggi nemendur undir prófin og leiddi til árangurs í ţeim. Ţessi kennsluhefđ virtist leiđa til námsmenningar sem einkenndist af takmörkuđum námsáhuga nemenda og áherslu á einkunnir fremur en nám ţar sem ýtt vćri undir ígrundun, lausnaleit og djúpan skilning.

Leiđbeinandi var dr. Ingvar Sigurgeirsson prófessor viđ Kennaraháskóla Íslands. Auk hans sátu í doktorsnefnd dr. Allyson Macdonald prófessor viđ Kennaraháskóla Íslands og dr. Júlíus Björnsson forstöđumađur Námsmatsstofnunar. Andmćlendur viđ vörnina verđa dr. Gerđur G. Óskarsdóttir frv. frćđslustjóri í Reykjavík og dr. Sigurlína Davíđsdóttir dósent viđ Háskóla Íslands.

Rúnar Sigţórsson er fćddur á Egilsstöđum 25. maí 1953. Hann lauk B.Ed.-prófi frá Kennaraháskóla Íslands áriđ 1978 og framhaldsnámi í skólastjórnun frá sama skóla áriđ 1994. Áriđ 1996 lauk hann M.Phil.-prófi í menntunarfrćđi međ áherslu á skólaţróun frá Háskólanum í Cambridge í Englandi.

Rúnar hóf störf sem grunnskólakennari áriđ 1978 og kenndi í Hrafnagilsskóla og  viđ Alţýđuskólann á Eiđum ţar til hann tók viđ skólastjórn Grunnskólans á Eiđum áriđ 1990. Hann var ađstođarskólastjóri í Hafralćkjarskóla 1995–1996 og starfađi sem kennsluráđgjafi viđ Skólaţjónustu Eyţings árin 1996–1999. Hann var ráđinn lektor viđ kennaradeild Háskólans á Akureyri áriđ 2000 og dósent frá 2004.





Til baka
 
Á döfinni
Enginn atburđur á skrá
 
Könnun
Hefur álag í kennslunni aukist á ţessum vetri?

Nei
Veit ekki

 
OZON-Vefumsjónarkerfiđ
Félag Grunnskólakennara - Laufásvegi 81 - 101 Reykjavík - Sími: 595-1111