Fundargerð
Fundur stjórnar KSNV og trúnaðarmanna haldinn að Bakkaflöt 10. okt. 2007
Að ósk formanns samþykkti fundurinn að skella saman stjórnar- og trúnaðarmannafundi.
Stjórn KSNV skipti með sér verkum.
Formaður verður áfram Sigurður Þór Ágústsson, gjaldkeri Fríða Eyjólfsdóttir, ritari Sigurlaug Kr. Konráðsdóttir og meðstjórnendur Sigurbjörg Bjarnadóttir og Ragnheiður Sveinsdóttir.
Samþykkt samhljóða.
Umræður um haustþing.
Fundarmenn lýstu almennt ánægju sinni með nýafstaðið haustþing á Akureyri og sögðu tóninn vera þannig í sínum skólum þó auðvitað megi alltaf eittthvað bæta.
Helstu neikvæðu atriði eru þau að kennarar voru yfirleitt ekki sáttir við að fá námsefniskynningu í einstaka greinum í stað námskeiðs.
Við Námsgagnastofnun er að sakast og því þurfum við að krefjast þess að hún skilgreini betur það sem hún býður uppá á haustþingi.
Ábending kom frá íþróttakennara að það sé aldrei neitt fyrir íþróttakennara! Réttmæt ábending sem sannarlega þarf að bæta úr.
Almenn ánægja með veitingar og þjónustu í Brekkuskóla.
Þá er fólk ekki verulega ánægt með samkomuna um kvöldið á KEA.
Langur tími leið á milli þeirra rétta sem fram voru bornir, sem voru þó mjög gómsætir!
Skemmtiatriði alltof löng og samkvæmisleikir algjörlega úr takt!
Of stuttur tími til að dansa en hljómsveitin mjög góð. Aðkeyptur veislustjóri jafnvel óþarfur.
Hugsanlega er hægt að hafa skemmtiatriði frá nokkrum skólum.
Rætt um að koma hefði þurft fréttum af haustþinginu í Skólavörðuna og ætlar Sigurður að ræða við Daníel formann BKNE um það.
Aðalfundur KSNV illa sóttur eins og venja er, hvers vegna?
Rætt um minnkandi stéttarvitund kennara, sem og annarra, og hversu mikilvæg haustþing eru til að efla þá vitund.
Munum skoða vandlega hvort framhald verður á samstarfinu við BKNE um haustþing. Hugsanlega má sameinast um þing annaðhvert ár.
Hluti stjórnar sat nýverið Kjaramálaráðstefnu. Sami tónn allsstaðar: fólk vill fá meiri peninga fyrir vinnuna sína. Svo einfalt er það. Ánægja með ráðstefnuna – en mikil ólga vegna launamála.
Fundi slitið